Eins og sl. vor þá ætlar Golfklúbburinn Keilir að bjóða upp á fræðslu um golfreglur fyrir meðlimi sína. Námskeið verða haldin fimmtudaginn 4. apríl fyrir almenna félaga og kvennakvöld miðvikudaginn 10. apríl í Hraunkoti, sal á efri hæð og hefst kl. 20:00.
Kennari er golfdómarinn Hörður Geirsson.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á þetta námskeið og undirbúa sig þannig fyrir sumarið.
Námskeið um golfreglur 4. og 10. apríl kl.20:00
Dagskrá.
- Leikhraði, siðareglur, umgengni. Hvernig getum við gert golfleikinn ánægjulegri fyrir alla?
- Uppbygging golfreglnanna og grundvallaratriði.
- Nánari útlistun á reglum sem oft þarf að nota.
- Hvaleyrarvöllur og golfreglurnar. Staðarreglur, vallarmörk o.fl.
- Umræður.