Dagana 28. júlí til 1. ágúst er golfskóli Keilis fyrir alla krakka á aldrinum 5 til 12 ára.
Hægt er að velja um námskeið sem er frá kl. 9:00 til 11:45 eða kl. 12:30 til 15:15.
Markmið með golfskóla Keilis
– er fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 5-12 ára
– að fyrstu kynni af golfi eru jákvæð og það er gaman að leika golf
– farið verður í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga
– leiknar eru nokkrar golfholur á golfvelli
– kennsla er gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar
– áhersla er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum
Yfirumsjónarmaður með golfskólanum hefur Karl Ómar Karlsson PGA golfkennari og grunnskólakennari.
Leiðbeinendur námskeiðanna koma úr hópi afreksefnahópi GK á aldrinum 16 til 21 árs.
Þau flest eru með verulega reynslu af námskeiðahaldi.
Skráning fer fram rafrænt á skráningarformi á Keilir.is. Skráning er hafin.