Á aðalfundi Golfklúbbsins Keilis sem haldinn var 10. desember s.l. var samþykkt fjárhagsáætlun stjórnar klúbbsins. Áætlunin byggir á gjaldskrá sem jafnframt var lögð fram á fundinum. Með hliðsjón af þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum er niðurstaða stjórnar eftirfarandi.
Miðað við núverandi aldurssamsetningu félagsmanna, liggur fyrir að fjölga þarf fullgreiðandi félagsmönnum og jafnframt að ná fram fjölgun meðal ungs fólks. Stjórnin samþykkir að aldurshópurinn 27-70 ára greiði fullt gjald. Aðrir aldurshópar greiði hlutfall af fullu gjaldi eins og kynnt var á aðalfundi.
Í stað þess að færa aldurshópinn 67-70 ára í fullgreiðandi hópinn strax á árinu 2016 samþykkir stjórnin eftirfarandi aðlögun á næstu þremur árum:
2016
67-70 ára 80% af fullu gjaldi
71-74 ára 80% af fullu gjaldi
75 ára +70% af fullu gjaldi
2017
67-70 ára 90% af fullu gjaldi
71-74 ára 75% af fullu gjaldi
75 ára +60% af fullu gjaldi
2018
67-70 ára 100% af fullu gjaldi
71-74 ára 75% af fulllu gjaldi
75 ára +50% af fullu gjaldi
Samþykkt gjaldskrá fyrir Hvaleyrarvöll árið 2016:
Hópur 0 – 18 ára 22.750kr (25% af fullu gjaldi)
Hópur 19-26 ára 45.500kr (50% af fullu gjaldi)
Hópur 27-66 ára 91.000kr (fullt gjald)
Hópur 67-70 ára 72.800kr (80% af fullu gjaldi)
Hópur 71-74 ára 72.800kr (80% af fullu gjaldi)
Hópur 75 ára og eldri 63.700kr (70% af fullu gjaldi)
Samþykkt gjaldskrá fyrir Sveinskotsvöll 2016:
Hópur 0 – 18 ára* 12.500kr (25% af fullu gjaldi)
Hópur 19-26 ára 25.000kr (50% af fullu gjaldi)
Hópur 27-66 ára 50.000kr (fullt gjald)
Hópur 67-70 ára 40.000kr (80% af fullu gjaldi)
Hópur 71-74 ára 40.000kr (80% af fullu gjaldi)
Hópur 75 ára og eldri 35.000kr (70% af fullu gjaldi)
*Aldurinn 0-16 ára greiða engin gjöld á Sveinskotsvöll