Þjálfunarleiðin í golfi hefst þriðjudaginn 8. nóvember. Hægt er að velja að æfa kl. 19:00 eða kl. 20:00.
Æfingar eru 15 talsins í vetur. Hver æfing er 50 mín. að lengd. Fimm æfingar verða fyrir áramót og tíu æfingar eftir áramót.
Það verða einnig jólapúttmót, golfreglukvöld og leikur í golfhermi í boði.
Verð er 40.000 kr.- og eru kúlur ekki innifaldar í verði en í boði er að fá afslátt af þeim.
Golfþjálfarar verða Kalli og Bjössi sem eru PGA golfkennarar hjá Golfklúbbnum Keili.
Skráning og nánari upplýsingar eru á netfangið karl.omar.karlsson@grundaskoli.is