Guðrún Brá og félagar hennar í Fresno State skólanum lentu í 2. sæti á Johnie Imes Invitational mótinu sem lauk í vikunni.
Guðrún lék á vel á mótinu með skor upp á 76-70 og 72 eða tvo yfir pari og endaði í 15. sæti í einstaklingskeppninni.
Næstu verkefni hjá Guðrún Brá og liðsfélögum er um helgina. Þá leika þær á Ron Moore intercollegiate mótinu í Colorado.