Verðlaunaafhending fyrir sumarmótaröð kvennastarfsins var haldin fimmtudagskvöldið 26. september. Veitt voru verðlaun í tveimur forgjafaflokkum og einnig hjá þeim sem eingöngu spila á Sveinskotsvelli. Fyrstu verðlaun í forgjafaflokki 0 – 18 var Þórdís Geirsdóttir með 133 pkt. fyrir 4 bestu mótin og í forgjafaflokki 18.1 – 34.4 Guöbjörg Erna Guðmundsdóttir með 141 pkt fyrir 4 bestu mótin. Á Sveinskotsvelli var Vilborg Gísladóttir með besta árangurinn 69 pkt fyrir 4 bestu mótin, en á Sveinskotsvelli eru spilaðar 9 holur.
Úrslitin sumarmótaraðarinn voru þegar 4 bestu mótin telja.
Forgjafaflokkur 0 – 18 | |
Þórdís Geirsdóttir |
133 |
Anna Snædís Sigmarsdóttir |
128 |
Helga Gunnarsdóttir |
127 |
Jónína Kristjánsdóttir |
126 |
Þorbjörg Albertsdóttir |
121 |
Forgjafaflokkur 18.1 – 34,4 | |
Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir |
141 |
Elna Christel Johansen |
138 |
Dröfn Þórisdóttir |
128 |
Lilja Bragadóttir |
127 |
Ragnheiður Ríkharðsdóttir |
126 |
Breyting verður á kvennanefndinni á komandi starfsári. Ingveldur Ingvarsdóttir formaður kvennanefndar hætti í nefndinni eftir 5 ára starf sem formaður nefndarinnar og einnig hætti Þórdís Geirsdóttir í nefndinni. Nýjar konur komu í nefndina þær Ásgerður Ingólfsdóttir og Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir. Formaður kvennanefndar á næsta starfsári verður Anna Sigríður Gunnarsdóttir. Aðrar í kvennanefnd eru Birna Ágústsdóttir, Margrét Sigmundsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Hjördís Sigurbergsdóttir.