Nýr starfskraftur í Hraunkot

2017-11-08T15:33:25+00:0008.11.2017|

Keilir hefur tekið í notkun tvo Robota til að týna æfingabolta og slá grasið á  æfingarsvæðinu okkar. Tækninni fleygir fram og að sjálfsögðu tökum við þátt í þróuninni. Vélarnar koma frá Belrobotics og standa þeir mjög framarlega í þróun sláttuvéla og týnsluvéla fyrir golfæfingasvæði. Vélarnar eru algjörlega sjálfvirkar og skila boltunum beint í sölukerfið í Hraunkoti án þess að mannshendin komi þar við sögu, ásamt því að slá svæðið. Þessar vélar hafa verið í notkun síðan 2007 við góða orðstír og sala hefur aukist til muna á tækninni um allan heim. Þetta mun skila sér í mun snyrtilegra æfingasvæði og koma í veg fyrir boltaleysi. Vélarnar hafa að sjálfsögðu fengið nafn til að aðgreina þær frá öðrum starfskröftum í Hraunkoti og munu þær hljóta nafngiftina Sigursteinn fyrsti og Sigursteinn annar  og mynda þær teymið “SS”. Notkunin verðu ekki mikil nú í vetur enn við gerum ráð fyrir að sjá vélarnar strita allan sólarhringinn næsta sumar.