Nýliðin helgi var lokahelgi mótahalds hjá unglingunum okkar. Stigamót var haldið á Urriðavelli og Áskorendamót á Kálfatjarnarvelli. Þáttakendur voru 215 þar af 50 frá Keili. Árangur var góður líkt og fyrr í sumar en 8 einstaklingar frá GK unnu til verðlauna um helgina.
Eftirtaldir komust á verðlaunapall:
Stigamót Arion banka
17-18 ára stelpur 1 sæti Anna Sólveig Snorradóttir
17-18 ára strákar 3-4 sæti Benedikt Árni Harðarson
3-4 sæti Ísak Jasonarson
15-16 ára stelpur 2 sæti Sara Margrét Hinriksdóttir
14 ára og yngri strákar 2 sæti Helgi Snær Björgvinsson
14 ára og yngri stelpur 2 sæti Þóra Kristín Ragnarsdóttir
Áskorendamót
15-16 ára strákar 1 sæti Þorkell Már Júlíusson
14 ára og yngri strákar 2 sæti Ólafur Andri Davíðsson