Nýliðna helgi var haldið Íslandsmót í Holukeppni Unglinga hjá GKG og Áskorendamót í Setbergi. Keilir eignaðist tvo Íslandsmeistara auk þess að vinna til fjölda verðlauna. Þáttakendur á mótum helgarinnar voru samtals 227 þar af 42 frá Keili.
Eftirtaldir komust á verðlaunapall:
Íslandsmót í Holukeppni
17-18 ára stelpur 1. sæti Anna Sólveig Snorradóttir
3. sæti Bryndís María Ragnarsdóttir
15-16 ára drengir 1. sæti Gísli Sveinbergsson
3. sæti Birgir Björn Magnússon
15-16 ára stúlkur 2.sæti Þóra Krístín Ragnarsdóttir
3. sæti Sigurlaug Rún Jónsdóttir
14 ára og yngri telpur 3.sæti Hekla Sóley Arnarsdóttir
Áskorendamót
17-18 ára strákar 1.sæti Þorsteinn Erik Geirsson
2.sæti Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson
15-16 ára strákar 1. sæti Sverrir Kristinsson