Það var loksins þokkalegt golfveður í dag og var þáttakan í þessu innanfélagsmóti nokkuð góð. Dagurinn skiptist reyndar í tvennt veðurfarslega og þeir sem spilaðu fyrri hlutan fengu frekar stífan vind sem róaðist svo er leið á daginn. Góð skor litu dagsins ljós og voru kylfingar greinilega að leggja sig allan fram, enda glæsileg verðlaun að vanda. 97 hressir GK-ingar tóku þátt og urðu helstu úrslit eftirfarandi.
Besta skor dagsins átti Birgir Björn Magnússon á 69 höggum.
Punktakeppni:
Ingvi Hrafn Hálfdánsson 41
Thelma Sveinsdóttir 40
Birgir Björn Magnússon 39
Sigurður Sveinn Sigurðsson 38
Ívar Jónsson 38
Nándarverðlaun á 10. Braut Einar Helgi Jónsson 0,65 cm
Á morgun munum við svo birta nöfn þeirra 16 sem komast áfram í Bikarnum 2013. Vinningshafar eru beðnir um að vitja vinninga á skrifstofu Keilis.
CSA leiðrétting er +1