Þá er dagur að kveldi kominn og úrslitin úr ZO-ON Open eru klár. 182 kylfingar fylltu glæsilegt mót sem tókst mjög vel. Flott veður og fín skor voru í allan dag. Það er óhætt að segja að Hvaleyrin hafi skartað sínu fegursta í dag og tók vel á móti gestum sínum. Glæsileg verðlaun í boði og góður matur fylgdi að ógleymdum einum köldum Kalda bjór. ZO-ON og Sérmerkt buðu svo öllum kylfingum teiggjöf. Þá skulum við renna yfir helstu úrslit.
Höggleikur
1. sæti Davíð Jónsson GS 69 högg
2. sæti Hlynur Geir Hjartarsson GOS 72 högg
3. sæti Guðmundur Rúnar Hallgrímsson GS 72 högg
Punktakeppni
1. sæti Ólafur Örn Jónsson GKJ 40 punktar
2. sæti Daníel Einarsson GK 40 punktar
3. sæti Camila Margareta Tvinqmark 39 punktar
Veitt voru verðlaun fyrir 3. efstu sætin í höggleik og punktakeppni.
Nándarverðlaun
4. braut Camila Margareta Tvinqmark 1,20 m
6. braut Magnús Friðrik Helgasson 1,97 m
10. braut Erlingur Arthússon 6,11 m
16. braut Aron Valur Þorsteinsson 0,99 cm
Lengsta “Drive” 13. braut
Kristmann Freyr Dagsson
Golfklúbburinn Keilir þakkar keppendum fyrir þáttökuna. Einnig þökkum við styrktaraðilum mótsins fyrir stuðninginn. ZO-ON, Leonard, Sérmerkt, Hole In One, Icelandair, Kaldi stuttu mótið dyggilega. Takk fyrir okkur.