Félagsstarf – Skemmtanir2018-12-09T22:19:00+00:00

Skemmtanir

Jónsmessan var haldin 22. júní. Það hefur verið einkennismerki Keilis í gegnum tíðina að halda uppá veglega Jónsmessu ár hvert og mætingin alltaf verið góð hjá félagsmönnum. Í ár vorum við að sjálfsögðu að fagna Jónmessu með golfi í 51. sinn. Það er mikil breyting á aðstöðu hjá okkur þegar við getum tekið á móti yfir 100 manns í salinn okkar enn áður þurftum við að skera þáttöku niður við um 80 manns. 80 manns voru skráðir til leiks í þetta skiptið og var stemningin mjög góð.

Því miður var ekki hægt að halda Bændaglímuna að þessu sinni vegna slæms veðurs.

Þorrablótið á sér fastan sess í skemmtanalífi okkar Keilismanna, alltaf hefur tekist að fylla á þetta kvöld. Að vanda var blótið haldið á bóndadaginn og verður svo áfram á næsta ári.

Afreksmannahóf Keilis er fastur liður á hverju ári, hófið var haldið að venju í janúar. Afreksfólki Keilis ásamt mökum var boðið til hófsins.

Á miðvikudagskvöldum eru bridgekvöld en spilakvöldin hafa verið haldin allt frá því að við fluttum í þennan golfskála. Í ár byrjar bridgeið vel og er góð mæting í golfskálann á miðvikudögum og bíða bridgerarnir eftir því að fleiri láti sjá sig. Það eru fáir atburðir eins fastir í sessi í félagslífinu ef golfið er undanskilið. Frá upphafi hefur Guðbrandur Sigurbergsson haft umsjón með þessum kvöldum. Minnum við á að allir eru velkomnir á þessi kvöld.

Áhugasamir félagar um knattspyrnu hittast líka á laugardagsmorgnum og tippa.
Öllum félagsmönnum er velkomið að mæta og taka þátt í getraunastarfsemi Keilis og mynda nýja hópa. Þess má geta þess að Balli er alltaf með heitt á könnunni.